Verkefni til meistaraprófs (M.S.)
Lýst er eftir nemendum í verkefni til meistaraprófs.
 
Verkefnin fjalla um eðlisfræði rafgasa og ættu að henta nemendum
 með bakgrunn í  rafmagnsverkfræði, sem og eðlisfræði eða efnafræði.

Meðal verkefna sem hugsanleg eru: 
 
i) Rafgasefnafræði SF6 spanafhleðslu 
 
ii) Spanafhleðsla til vetnisíbætingar 
 
iii) Spanspóla í segulspætu  
 
iv) Ræktun þunnra húða í segulspætu 
 
v) Áhrif orkudreifingar rafeinda á rafgasefnafræði  
 
vi) Áhrif vetnisíbætingar á fjölkristallaðan kísil  
 
vii) Hallhrif í hálfleiðurum 
 
viii) Mælingar með Langmuirnema og greining gagna  
 
ix) Vetni í málmsvömpum  
 
Verkefnin eru ýmist tilraunaverkefni eða einungis líkanagerð í tölvu. 
 
Önnur verkefni í rafgaseðlisfræði, rafeindatækni og/eða eðlisfræði hálfleiðara koma einnig til greina. 
 
 
Æskilegt væri að nemendur hefðu undirbúning sem svarar til 09.21.47 Rafsegulfræði II, 09.21.49 
Rafeindatækni fastra efna, 
09.21.42 Eðlisfræði IV, eða 09.31.35 Eðlisefnafræði 2.  
 
Til greina koma einnig minni sér- eða lokaverkefni.   
 
 Til frekari upplýsingar um rafgaseðlisfræði er bent á greinina
 Veikt jónað
 rafgas: Kennistærðir og notkun sem birtist í ráðstefnuritinu
 Eðlisfræði á Íslandi IX.  
 
Áhugasamir sendi tölvupóst eða kíkt til mín í herbergi I-102 VR-III 
 
Þessi síða hefur verið heimsótt 
 sinnum síðan 15. desember 1999.