Sæll Nokkur vafaatriði sem ég er að velta fyrir mér. Heimadæmi 10. dæmi 5: Hvaðan eru jöfnurnar fengnar? Á maður að nota líkan Bohrs við þessar aðstæður? Þetta er líkan Bohrs sem er notað í lið (a) og (b) og mér sýnist það ganga (230 meV >> 25 meV) Heimadæmi 11. dæmi 4 liður (a): Skil ekki hvaðan jafnan fyrir orkustig rafgjafanna í svörunum uppi á safni er fengin. Jú, þetta vísar til kafla 3.3.3. í fjórðu útgáfu Streetman. Þetta má einnig finna á bls. 322 í Blakemore, Solid State Physics Heimadæmi 11. dæmi 4 liður (b): Af svörunum er ekki víst hvort um sé að ræða íbótarleiðni eða eiginleiðni Eins og ég skil svörin er sagt í byrjun dæmisins að um eiginleiðni sé að ræða, en hins vegar er niðurstaða úr upphafsreikningunum notuð eins og ef um íbótarleiðni væri er að ræða. Hvort er rétt? Við 1500 K er efnið eiginleiðandi. Í lausninni er sýnt fram á að svo sé. Heimadæmi 11. dæmi 4 liður (c): Hvernig getur Fermiorkan verið fyrir orkugeilinni miðri við T = 1500K Eiginleiðni? Hér er efnið eiginleiðandi og jafnmikið af rafeindum í leiðniborða og holum í gildisborða. Heimadæmi 12. dæmi 3: Miðað við svarið sem gefið er, skil ég ekki hvernig maður átti að geta leyst dæmið. Ég viðurkenni að þetta er allþungt dæmi. En með kafla 3.3.2 í fjórðu útgáfu Streetman hefðuð þið á að sjá að nálgunin jafna (3-4) gildir ekki. Afgangurinn var svo bara tegrun, reyndar fremur erfitt tegur. Dæmablað með prófi: Jöfnur (19) sem fjalla um óendanlegan orkubrunn ber ekki saman við jöfnur (2.27) í bók I.M. Rae bls.24. Þar sem á að vera jöfn tala á að vera oddatala og öfugt. Ég á von á að Rae sé rétt Óvissulögmál Heisenbergs (jafna (57)) er einnig í ósamræmi við það sem stendur í bók I.M. Rae. Í henni er h-bar margfaldað með 1/2. Skiptir það kannski engu máli? Ekki stórt mál. Kveðja Ragnar